Reglur:
- Skráning fer eingöngu fram á rafrænan hátt á netinu og verða 40-50 hljómsveitir valdar til þátttöku.
- Þátttökugjald er 8.500 kr. árið 2016.
- Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist Músíktilraunum fyrir lokafrest.
- Mjög mikilvægt er að setja nafn hljómsveitar sem skýringu þegar greitt er í heimabanka/banka.
- Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12-15 mínútur.
- Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit áfram í úrslit og dómnefnd einnig eina hljómsveit.
- Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja hljómsveitir áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að hljómsveit komist áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi. Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í þær hljómsveitir sem um verður að ræða.
- Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en salur og áheyrendur kjósa um Hljómsveit Fólksins.
- Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13-25 ára. Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: Sýnishorn (demo) það sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar, þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.
- 40-50 hljómsveitir geta tekið þátt á tilraununum á hverju ári. Fagnefnd á vegum Hins Hússins mun síðan velja og samþykkja umsóknir sem standast inntökukröfur tilraunanna.
- Athugið að notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.
- Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna það strax á musiktilraunir@reykjavik.is
Markmið:
- Að veita ungum íslenskum hljómsveitum og tónlistarfólki tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri.
- Að skapa vettvang fyrir unnendur tónlistar til að geta fylgst með ungum og efnilegum hljómsveitum og tónlistarfólki.
- Að stuðla að því að fjölmiðlar skapi umræðu og kynningu í samfélaginu á ungu og upprennandi tónlistarfólki.
- Að hvetja til textagerðar á íslensku.